11/09/2026
🍂 Haustið er komið á fullt í HA!
HA-ingar eru búnir að finna taktinn eftir sumarfrí og það er svo sannarlega gaman að sjá háskólasvæðið iða af lífi á ný.
Við hófum skólaárið formlega með Nýnemadögum í lok ágúst, þegar við tókum á móti fjölmennum hópi nýnema í grunnnámi. Síðan þá hefur mikið verið um að vera. Í hverri viku koma stórir hópar stúdenta til Akureyrar í lotur, á sama tíma og fjölmennur hópur stundar staðnám við HA og mætir á háskólasvæðið alla daga.
Það er því nóg um að vera – kennsla, verkefnavinna, viðburðir, spjall yfir kaffibolla og allt það sem fylgir lifandi háskólasamfélagi. ❤️
Það er gott að vera komin aftur á fullt. Velkomin í HA hvort sem þið eruð að stíga ykkar fyrstu skref hér eða eruð gamalreyndir HA-ingar!
Meðfylgjandi myndir tók Sindri Swan á Nýnemadögum og eru fleiri myndir aðgengilegar í athugasemd.