04/09/2026
Svipmyndir frá námskeiðinu Stjórnun friðlýstra svæða sem fór fram hér á Hornafirði nú í vikunni. Fyrstu myndirnar voru teknar í vettvangsferð að Hrútárjökli og Fjallsjökli, þá koma myndir frá hlöðunni góðu á Hala, síðan frá málþingi í Nýheimum og loks frá heimsókn á nýju jöklasýninguna (Líf jökulsins) sem opnaði á veitingastaðnum Heppu fyrir fáeinum vikum. Þetta er 18. eða 19. árið sem námskeiðið er kennt - fyrsta námskeiðið var haldið 2007 og síðan hefur það verið kennt árlega, nema meðan COVID faraldurinn geisaði. Metþátttaka í ár: 28 nemendur, af mörgu þjóðerni og með fjölbreyttan faglegan bakgrunn.