september 1973 af Ingólfi A. Þorkelssyni, skólameistara. Í fyrstu fór starfsemi skólans fram í viðbyggingu við Kópavogsskóla og voru nemendur alls 125 talsins í sex bekkjardeildum en kennt var eftir bekkjarkerfi.
Árið 1982 var kennslukerfinu breytt og tekið upp svokallað kjarnakerfi sem var millileið milli bekkjakerfis og áfangakerfis og MK varð því menntaskóli með fjölbrautarsniði. Menntaskólin
n í Kópavogi var til húsa í Kópavogsskóla fyrstu tíu árin en árið 1983 var starfsemi hans flutt í Víghólaskóla, það húsnæði er enn notað og merkt sem A- álma, N- álma og S- álma.
Á vordögum 1991 hófust byggingaframkvæmdir við skólann og var fyrsti hluti tekinn í notkun haustið 1993. Þremur árum síðar, 1996 var risið glæsilegt verknámshús fyrir hótel- og matvælagreinar. Árið 2002 var tekin sú ákvörðun að rífa norður álmu skólans og byggja í hennar stað nýtt tveggja hæða bóknámshús auk sér búinnar kennsluaðstöðu fyrir sérdeild skólans. Á 30 ára afmæli skólans 2003 var ný norðurálma tekin í notkun. Ingólfur A. Þorkelsson lét af störfum sem skólameistari árið 1993 og við af honum tók Margrét Friðriksdóttir. Margrét var skólameistari MK til vorsins 2019 þegar núverandi skólameistari tók við, Guðríður Eldey Arnardóttir. Leiðsöguskólinn á aðsetur í MK og hefur starfað frá árinu 1976. Námið er bæði víðfeðmt og fjölbreytt og mikil áhersla er lögð á verklegar æfingar þannig að nemendur séu sem best undirbúnir undir að leiðsegja erlendum ferðamönnum um Ísland að námi loknu. Menntaskólinn í Kópavogi er móðurskóli matvælagreina á Íslandi. Við skólann eru kenndar fjórar greinar til sveinsprófs, matreiðsla, framreiðsla, bakstur og kjötiðn, en auk þess er boðið upp á nám til starfsréttinda fyrir matsveina og matartækna. Auk starfsnámsins er boðið upp á metnaðarfullt nám til stúdentsprófs í almennum bóknámsgreinum, við skólann er starfsbraut og framhaldsskólabrú fyrir nemendur sem ekki hafa lokið fullnægjandi árangri úr grunnskóla. Frá árinu 2019 hefur afreksíþróttafólki gefist kostur á að stunda nám við skólann þar sem boðið er upp á sérhæft nám fyrir afreksíþróttafólk samhliða almennu bóknámi. Vorið 2022 voru um 850 nemendur við skólann og um 100 starfsmenn. Tvö bindi hafa verið gefin út af sögu skólans:
- Saga Menntaskólans í Kópavogi 1973-1983, útg. MK 1997
- Saga Menntaskólans í Kópavogi 1983-1993, útg.