04/09/2026
Háskólamenntun hefur lengi verið talin ein öruggasta leiðin til hærri tekna, betri stöðu á vinnumarkaði og aukins efnahagslegs öryggis. Niðurstöður nýrrar könnunar sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands framkvæmdi fyrir BHM og félög háskólamenntaðs fólks utan bandalagsins sýna hins vegar að myndin er flóknari þegar kemur að aðgengi að húsnæði.
Ný könnun á húsnæðisstöðu háskólamenntaðra bendir til þess að innganga á húsnæðismarkað sé fyrir marga háð fjölskylduaðstoð og að leiðin að húsnæðisöryggi og eignamyndun geti verið flóknari en ætla mætti af menntunarstigi hópsins.